Staða félagsmanna FLM í ljósi nýgerðra kjarasaminga.

Í tilefni af nýjum kjarasamningum nú í desember 2022 á almennum vinnumarkaði, viljum við vekja athygli á að kjarasamningur FLM og Samtaka atvinnulífsins er ótímabundinn. Sjá nánar samning FLM og SA.

Í Kjarasamningin segir að launakjör ráðist af því sem semst um á markaði og í viðtali um hugsanlegar breytingar á starfskjörum geta vinnuveitandi og starfsmaður m.a. haft til hliðsjónar launabreytingar í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði.

Félagsmenn FLM eiga því rétt á þeim launahækkunum sem samið er um á almennum markaði og hvetjum við félagsmann að óska eftir viðtali við sína yfirmenn nú í kjölfar samninga ASÍ félaga. Þó geta verið álitamál við hvaða hópa skal miða þar sem ekki hefur verið samið við t.d. háskólamenn eða starfsfólk fjármálafyrirtækja.

Sækja um aðild