Morgunfundur FLM 5. október 2022
Nýir tímar á vinnumarkaði kalla á nýja nálgun stéttarfélaga
Við lifum lengur en áður – er þitt stéttarfélag tilbúið undir að styðja þig lengur en áður? Vinnumarkaðurinn er sífellt að breytast en spurning er hvort stéttarfélög haldi í við og nái að laga sig að þessum breytingum. FLM boðar til spjalls um sjúkrasjóði og tryggingar á vinnumarkaði framtíðarinnar, miðvikudaginn 5. október kl. 9:00-10:15.rnu003cdiv style=u0022padding: 56.25% 0 0 0; position: relative;u0022u003eu003ciframe style=u0022position: absolute; top: 0; left: 0; width: 100%; height: 100%;u0022 src=u0022https://vimeo.com/event/2481384/embedu0022 frameborder=u00220u0022 allowfullscreen=u0022allowfullscreenu0022u003eu003c/iframeu003eu003c/divu003e
FULLTRÚI FLM
Gunnar Páll Pálsson, formaður stjórnar FLM
Gunnar mun fjalla um sjúkrasjóði stéttarfélags, m.a. í ljósi hækkandi lífaldurs, fjölgun öryrkja o.fl. Einnig mun hann segja frá tryggingavernd sjúkrasjóðs FLM og bera saman við aðra sjúkrasjóði.
FRAMTÍÐ VINNUMARKAÐAR
dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Árelía mun fjalla um framtíðina á vinnumarkaði, hvernig fólk mun í auknu mæli vinna með nýjum hætti, sem kallar á að aðilar vinnumarkaðarins þurfa að endurhugsa margt frá fyrri tíð.
SÝN GIGGARA
Orri Huginn Ágústsson, formaður bandalags sjálfstæðra leikhúsa
Orri mun tala út frá eigin reynslu og tilfinningu og þeirri vitneskju sem hann býr yfir um hvernig tryggingamálum og sjúkrasjóðum er fyrirkomið hjá sjálfstætt starfandi listafólki í Evrópu.
Einnig mun hann fjalla um hvernig þau kerfi sem við eigum eru ekki að grípa fólk í gigg-hagkerfinu og hvernig opinberir aðilar, sem og aðilar vinnumarkaðarins hafa ekki náð að hjálpa þessum einstaklingum sem skyldi.
SÝN MANNAUÐSSTJÓRA
Erna Arnardóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá CCP
Erna mun deila sýn mannauðsstjórans á stéttarfélög. Einnig mun hún fjalla um í hversu miklum mæli stjórnendur og sérfræðingar eru almennt meðvitaðir um tryggingar sínar á vinnumarkaði.
Aðild að félaginu
Skráðu þig hér
Að skrá sig í FLM er ódýr kostur, aðeins 0.05 % mánaðarlegt félagsgjald sem greiðist af launþega og 1% sjúkrasjóðsgjald sem greiðist af vinnuveitenda.
Sækja um aðild